Gaman gaman

Þegar hún Ragga mín er að tala við hana Sirrý vinkonu sína á Rás 2 á sunnudagsmorgnum þá segir hún stundum, „ og það er nú gaman að segja frá því" og ég ætla bara að gera hennar orða að mínum og segja.

Og það er nú gaman að segja frá því að hingað í 2.fjord kom í dag einn ráðherra úr Grænlensku heimastjórninni, umhverfis og vegamálaráðherrann.  Var hann að kynna sér verkið og vonandi fer hann með góða sögu af okkur inn á fund hjá heimastjórninni þegar þeir ákveða hver skal virkja fyrir þá í Ilullisat. En það er hér norðar á Grænlandi og hefst næsta vor. Útboðið í það verk var opnað núna á mánudag og var Ístak nr. 2 Einhverjir Danir buðu lægra, en þeir hafa ekki jafn mikla reynslu í svona virkjanagerð líkt og Ístak hefur. Nú á heimastjórnin eftir að fara yfir tilboðinn, þeir kalla það fegurðarsamkeppni, þar sem reynsla fyrirtækjanna, teikningar og annað slíkt er borið saman og síðan endanleg ákvörðun tekinn.

Það var svo sem ekkert verið að snobba neitt fyrir blessuðum ráðherranum, hann kom kl 13.00 og fékk bara sama mat eins og aðrir á staðnum, kjötbollur, kartöflur og sósu, og borðuðu þau bara vel og fengu nýbakaða hjónabandssælu á eftir. Allir kátir með það. Svo fór hann og hans föruneyti í skoðunarferð um svæðið, allir saddir og sælir.

Ef menn vilja kynna sér eitthvað þetta verk hér í 2.firði þá er Guðmundur Þórðarson, sem er staðarstjóri hér og tengdapabbi Svövu Dagnýjar, nýbúinn að senda inn á heimasíðuna hjá Ístak www.istak.is fína grein um verkið og myndir af svæðinu.

Fékk fullt af vörum í dag frá Nuuk og voru þær aðeins 2 vikur á leiðinni og er það nú bara nokkuð gott þannig að nú er loksins farinn að læra aðeins á þetta hér en þetta pantaði ég bara beint á netinu hjá þessu fyrirtæki í Nuuk. Alltaf að læra eitthvað nýtt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauti Árnason

Höfundur

Gauti Árnason
Gauti Árnason

Nokkuð staðfastur ungur maður með ákveðnar hugmyndir um lífið, 4 barna faðir sem lifir góðu lífi á Hornafirði

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Svæði hér í Patiksoq
  • IMG 3119
  • IMG 3117
  • Vegagerð
  • Rödeby

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband