19.7.2010 | 01:19
Planið
Plan næstu viku...
Mánudagur: 3 dagar og svo heim...júhú. Elda, baka. Byrja ápöntun sem þarf að fara til Danmerkur, og kemur eftir ca 4 vikur. Er reyndar aðfá í þessari viku ágæta pöntun frá Nuuk, og áætla að það dugi í ca 4vikur. Taka á móti gám sem kom með skipinúna um helgina og er væntanlega fullur af ýmsum áhöldum sem vantar í eldhúsiðog kampana.
Þriðjudagur: 2 dagar og svo heim...júhú. Elda, baka. Klárapöntunina og senda, reyna að átta sig á því hvað maður á að gefa fallegukonunni sinni í afmælisgjöf (djók, allt klárt)(næstum) Pakka niður eftirkvöldmat
Miðvikudagur: 1 dagur og svo heim...júhú. elda hád.matinn oggræja kaffið og svo vonandi, vonandi komast í bæinn, Illuissat. Þarf aðerindast svoldið þar....annars bara daginn eftir, kyssa tengdó bless
Fimmtudagur: Heimferðardagur. Ef ég kemst í bæinn á mið, þáer bara verið að ruglast um bæinn fyrir hádegi, verslað inn fyrir eldhúsið ogsvona. Mæting á flugvöllinn ca 12-13 tekið á móti Kalla Steingríms, en hannleysir mig af, náfrændi minn frá Akureyri. 4 tíma flug....bílaleigubíll á Íslog svo brunað á Hornafjörð, vonandi kominn ca 24.00.
Föstudagur: HEIMA ER BEST. Knúsast í Röggu minni, börnunum4, hundi og ketti, kaffi hjá mömmu, ruglast svona eitthvað....skítt meðbókhaldið...
Laugardagur: hvar er sól, þangað förum við með fellihýsið...komumheim eftir helgi, og þá með afmælisstúlkuna fögru.....
Gott plan maður
Í dag er búið að vera svaðalegt veður, svo heitt aðflugurnar gátu ekki einu sinni tekið á loft, enda örlítill gustur sem bjargaröllu. Ég og Aðalheiður skelltum okkur í smá hressingargöngu eftir Beikonið kl1100, og gengum sem leið lá hér í átt að þeim stað sem Portalbyggingin verður,en þar fer maður inn í fjallið til að komast að stöðvarhúsi virkjunarinnar.Fallegur dalur og fallegt fjall sem á eftir að fara inní. Fundum tófubæli, enenga tófu, hún þorði ekki út, annars ekki mikið líf hér fyrir utan einstakasmáfugl, þurfum nauðsynlega að flytja Hreindýr hingað á þessar slóðir.
Bless´ykkur
Um bloggið
Gauti Árnason
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahahahah þú ert ótrúlega sniðugur!!!
....Ástarkveðja og hlakka til að sjá þig(með allar afmælisgjafirnar!!!!!!)
Þín Ragnheiður síunga....
Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 07:56
Ferlega gott plan hjá þér
Sjáumst
Íris Gíslad (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.